Fræ og Áburður

Vörunúmer: 15644

Við erum komnir með nýjan fræ birgja, Goldcrop sem geta skaffað okkur yrkjum frá fremstu framleiðendum í bransanum.

Við getum boðið eftirfarandi yrki:

 

Heritage: Mjög flott yrki sem er í öðru sæti fyrir língresi (Bent) í Scangreen rannsókninni. Skorar hæst allra língresisyrkja fyrir vetrarþol.

 

Nigella: Yrki sem er í fyrsta sæti yfir „slender creeping red fescue“ í Scangreen rannsókninni.

 

Ramona og Siski: tvö virkilega flott yrki sem skora mjög hátt í sjýkdómsþoli í bresku BSPB rannsóknunum. Eru í fyrsta og þriðja sæti yfir „Chewings Fescue“ yrki í 10-15 mm sláttuhæð í BSPB tilraununum, og eru ofarlega í 4-7mm hlutanum (7. Og 15. Sæti)

 

Blöndurnar sem við erum með innihalda meira af Chewings Fescue sem er fyrr til á vorin við íslenskar aðstæður og er oftast þolnara fyrir Sjúkdómum.

 

Blöndurnar sem við getum boðið upp á :

 

Fescue mix

: 30% Ramona (CF) – 30% Siskin (CF) – 40% Nigella (SCRF)

 

Fescue Bent mix

 

: 25% Siskin (CF) – 25% Ramona (CF) – 30% Nigella (SCRF) – 20% Heritage (B)